|
|
|
|
|
Plast – má fara sér í glæran plastpoka
|
|
|
|
|
|
|
|

Einkenni og ástand
Þessi flokkur nær yfir öll plastílát, tappa, brúsa og fötur að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Plast er mismunandi samsett og sumt plast þess eðlis að ekki er hægt að endurvinna það. Til þess að fullvissa sig um að plastið sé endurvinnsluhæft má leita að merkjum sem venjulega eru innsteypt í hlutinn. Þessi merki eru þríhyrningar sem bera ákveðnar tölur eins og sjá má á myndinni (mynd ætti að vera hér til útskýringar). Tölurnar segja til um úr hvaða efni varan er og í hvaða endurvinnslu flokk hún getur farið. Beri varan ekki þetta merki verður að farga henni með almennu sorpi. Dæmi um þetta er t.d. plastbakki úr samsettu plasti. Með plastið gildir s.s. að varan beri númer frá 1 – 6 skv, þessum merkingum. Til þess að forðast að plastið mengi annan úrgang skal ganga frá því í glæran poka. Skola skal umbúðirnar og losa alla tappa af og hafa sér í pokanum. Allar umbúðirnar óháð númeri, mega fara saman í poka.
Hvað verður um þennan flokk í Flokkunarmiðstöð Íslenska Gámafélagsins?
Plastið fer á flokkunarband Íslenska Gámafélagsins þar sem sérhæft starfsfólk tekur það úr pokanum. Plastið er flokkað hvert í sinn flokk. Íslenska Gámafélagið hefur tvennskonar leiðir til úrvinnslu á plasti. Annarsvegar er plastið endurunnið innanlands eða erlendis. Hinsvegar er hægt að nýta plastið til orkuvinnslu, en plast er mjög heppilegt til orkuvinnslu.
Hvað gera endurvinnslufyrirtækin við hráefnið?
Endurvinnslufyrirtæki taka hráefnið og vinna áfram í nýjar vörur úr plasti t.d. vegstikur eða plaströr. Starfsemin nýtir plastið áfram. Við brennslu er orkan sem fæst við að brenna plastið í sérstökum brennsluofnum, nýtt til að kynda t.d. sundlaug. Slík brennsla er starfrækt á Kirkjubæjarklaustri þar sem hún kyndir m.a. upp skólann og sundlaugina. Ef ekki væri fyrir brennsluna þá þyrfti að kynda upp með því að brenna olíu. Mengunin er mjög lítil af brennslunni þar sem þær þurfa að uppfylla ströng skilyrði. Askan sem eftir verður er aðeins brot af því plássi sem varan tók áður. Nýta má öskuna til íblöndunar á malbiki eða þá urða hana.
Merkingar á plastumbúðum Allar plastumbúðir sem bera eftirfarandi merkingar mega fara í grænu tunnuna. Þær umbúðir sem ekki bera þessar merkingar verða að fara með almennu sorpi.
|
|
|
|
|