|
|
|
|
|
Fernur og sléttur pappi – má fara sér í glæran plastpoka
|
|
|
|
|
|
|
|

Einkenni og ástand
Í þennan flokk má setja allan sléttan pappa. Það er t.d. þvottefnispakkar, morgunkornspakki, skókassar, karton og fernur t.d. mjólkurfernur og djúsfernur. Fernurnar mega vera með skrúftöppum, en þá ætti að losa af og setja með plasti í sér poka. Umbúðir úr sléttum pappa má setja saman í glæran plastpoka. Passa þarf að hreinsa umbúðirnar vel t.d. skola fernurnar að innan, taka frá plast t.d. innan úr morgunkornspökkunum og fjarlægja allar matarleifar. Mjög mikilvægt er að setja hráefnið í glæran poka (til auðveldunar á flokkun) og loka honum vel til að spilla ekki öðrum hráefnum sem fyrir eru í tunnunni.
Hvað verður um þennan flokk í Flokkunarmiðstöð Íslenska Gámafélagsins?
Hráefnið fer um flokkunarband þar sem sérhæft starfsfólk fer í gegnum hráefnin. Til þess að auðvelda þeim vinnuna er ætlast til þess að hráefnið sé í gærum poka. Með því má strax sjá um hvaða flokk er að ræða. Hráefnin eru tekin úr pokanum hann flokkaður með mjúku plasti sem fer í böggun. Hráefninu er safnað saman þar til nægilegt hráefni er komið. Hráefnið er þá sett í öfluga pressu sem rúmmálsminnkar umbúðirnar og þjappar í 800 kg stórbagga. Böggunum er því næst komið fyrir í stórum gám sem sendur er til endurvinnslufyrirtækja erlendis. Með því að flytja hráefnin úr landi erum við að nýta pláss í kaupskipum sem koma hingað til lands með vörur, en sigla tóm til baka.
Hvað gera endurvinnslufyrirtækin við hráefnið?
Hráefnið er nýtt til þess að framleiða nýjar umbúðir. Sem dæmi má nefna að fyrirtækinu TetraPak er mjög umhugað að fá til sín notaðarfernur í endurvinnslu til þess að nota aftur í sínar vörur. Hægt er að endurvinna pappírstrefjarnar í fernunum margoft. Líkt og með pappír og pappa er markmiðið með endurvinnslu að ná niður kostnaði bæði fyrir umhverfi og náttúru. Það sem framleitt er úr þessum flokki er t.d. nýjar umbúðir úr sléttum pappa, pappalag utan um gipsplötur o.fl.. |
|
|
|
|